Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 27. október 2025

Ríkisendurskoðandi er sagður rauði þráðurinn í eineltismálum sem hafa komið upp hjá embættinu. Hann fer þar sjálfur með mannauðsmál.

Örtröð er á dekkjaverkstæðum á höfuðborgarsvæðinu. Útlit er fyrir mikla ofankomu á suðvestanverðu landinu annað kvöld og fram á hádegi á miðvikudag. Ökumönnum er ráðlagt vera ekki á ferðinni á vanbúnum bílum.

Nokkur hundruð manns þurftu yfirgefa heimili sín í Ósló í gærkvöld eftir jarðfall í miðju íbúðahverfi; enn er talin hætta á skriðum.

Harðlínu-hægrimanninum Geert Wilders er spáð sigri í þingkosningum í Hollandi á miðvikudag, en talið er ólíklegt Frelsisflokkur hans verði í nýrri ríkisstjórn.

Samfélagsmiðlar henta ekki sem almannarými til tjá sig um lýðræðisleg málefni, mati lektors í stjórnmálafræði, þar er höfðað til tilfinninga en sjaldnast farið á dýptina.

Flokkur forseta Argentínu vann afgerandi sigur í þingkosningum í gær. Bandaríkjaforseti hafði hótað afturkalla stuðning við landið ef flokknum gengi illa.

Paul Biya hefur verið endurkjörinn forseti Kamerún í áttunda sinn. Biya er 92 ára og er elsti þjóðarleiðtogi í heimi.

Snjóþyngsli gætu gert fótboltakonum erfitt fyrir á Laugardalsvelli á morgun þegar íslenska kvennalandsliðið mætir Norður-Írum.

Frumflutt

27. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,