Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 29. september 2025

Flugfélagið Play er hætt starfsemi. Um fjögur hundruð missa vinnuna og þúsundir Íslendinga eru strandaglópar í útlöndum.

Margir farþegar voru komnir brottfararhliði í Leifsstöð þegar flugi þeirra til Tenerife var aflýst. Einn þeirra segir ömurlegt komast ekki í sólina.

Forstjóri Play segir staða félagsins hafi ekki verið fegruð umfram tilefni. Reynt verður borga starfsfólki laun í dag.

Bandaríkjaforseti ber í dag áætlun sína um framtíð Gaza undir forsætisráðherra Ísraels. Forsetinn leggur til öllum gíslum verði sleppt og alþjóðleg stjórn taki við völdum.

Áhöfn á Seyðisfjarðarskipinu Gullveri og Grindavíkurskipinu Jóhönnu Gísladóttur hefur verið sagt upp störfum. Síldarvinnslan og dótturfyrirtækið Vísir eru í uppstokkun og flestum býðst pláss á öðrum skipum.

könnun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar bendir til þess erlendir ríkisborgarar hafi verið verulega vantaldir hingað til. í könnunum um húsnæðismál. Einn af hverjum þremur aðfluttum á leigumarkaði.

Erfitt er segja til um hvort og hvenær gýs aftur á Sundhnúksgígaröðinni. Eldvirkni gæti farið minnkandi samhliða minna kvikuinnstreymi undir Svartsengi, segir jarðeðlisfræðingur.

Víkingur getur farið langt með tryggja sér Íslandsmeistaratitil karla í fótbolta í kvöld.

Frumflutt

29. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,