Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 25. september 2025

Tíu þolendur mansals og vændis á snyrti- og nuddstofum hafa leitað til Bjarkarhlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis í ár. Teymisstýra segir vændi á þessum stofum falið vandamál.

Varnarmálaráðherra Danmerkur segir drónaumferð við flugvelli vera fjölþáttaógn. Drónar sáust við fimm flugvelli á Jótlandi í gærkvöld. Framkvæmdastjóri NATO lítur drónaflugið alvarlegum augum.

Það er erfiðara en nokkru sinni átta sig á rússneskum stjórnvöldum, þau eru óútreiknanleg, dómi sérfræðings í málefnum Rússlands. Rússar telji Vesturlönd hafi aldrei verið veikari.

Óveður skellur á suðaustanverðu landinu, Suðurlandi og Miðhálendinu í kvöld og víðar á morgun. Gul viðvörun hefur verið gefni út fyrir mestallt landið.

Lögregla var kölluð til í ferð menntskælinga á Njáluslóðir í gær. Söluskáli sem seldi nemendum áfengi hefur verið kærður. Barnavernd var tilkynnt um málið.

Innviðaráðherra segir það komi í ljós hvernig hann greiðir atkvæði um bókun 35, en segist samt styðja málið.

Verðbólga jókst milli mánaða og er 4,1 prósent. Ekkert útlit er fyrir hún lækki á komandi mánuðum, sögn hagfræðings.

RARIK vinnur því auðvelda fólki selja rafmagn í smáskömmtum meðal annars úr sólarsellum á þakinu. ýmsu er hyggja meðal annars til tryggja öryggi þeirra sem vinna við dreifikerfið.

Nýr fjölmiðill, TV1 magasín, hóf göngu sína um helgina. Ritstjórinn lofar góðri dagskrá.

Frumflutt

25. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,