Ísraelsher hefur enn á ný skipað fólki á brott frá Gaza-borg, langar raðir hafa myndast og fólk bíður þess að komast til suðurhluta Gaza. Heilbrigðisstarfsfólk lýsir skelfilegri stöðu á sjúkrahúsum.
Búist er við að fleiri ríki viðurkenni Palestínu sem sjálfstætt ríki á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. Prófessor í alþjóðarétti segir það mjög pólitíska ákvörðun sem hafi afleiðingar.
Bæta þarf skipulag geðþjónustu, segir forstjóri Landspítalans. Sameina á þjónustuna undir einu þaki, þá verður ekki lengur þörf fyrir eldri hús, eins og Klepp.
Bíllausi dagurinn er í dag og frítt í strætó. Farþegi segir óskiljanlegt að ekki séu fleiri sem nota strætó.
Kosið verður um formann og varaformann í fyrsta skipti í sögu þingflokks Pírata á aukaaðalfundi. Enginn hefur enn tilkynnt formlegt framboð.
Hundruð þúsunda íbúa í Suður-Kína verða flutt brott og hundruðum flugferða aflýst frá Hong Kong vegna ofurfellibylsins Ragasa, sem kom að landi á Filippseyjum í morgun.
Mögulega þarf að breyta bæði starfsleyfi tjaldstæðisins á Egilstöðum og skipulagi. Framkvæmdastjóri tjaldstæðisins segir slæmt ef ekki er hægt að nýta nálægar lóðir á álagstímum og vísa fólki frá.
Pompidou-listamiðstöðinni í París verður lokað í dag vegna endurbóta og verður lokuð næstu fimm árin.
Guðmundur Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari í handbolta, var rekinn frá danska úrvalsdeildarliðinu Fredericia í dag.