Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 11. september 2025

Forseti Bandaríkjanna kennir róttækri vinstri umræðu um bandamaður hans, Charlie Kirk, var skotinn til bana í gærkvöld. Morðið gæti leitt af sér aukið ofbeldi af pólitískum toga.

Fólk sem lengi hefur reynt komast inn á húsnæðismarkaðinn gæti þurft bíða lengur. Eftir fjögurra ára vaxtaskeið er skýr samdráttur í byggingariðnaði.

Fjármálaráðherra mælti fyrir fyrsta fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar í morgun. Stjórnarandstöðuþingmenn segja það dellu, sem styðji ekki við stefnu Seðlabankans.

Þriðjungur laxa sem voru fangaðir við leit eldislaxi síðsumars reyndist eldislax. Nær allir koma úr Dýrafirði þar sem gat fannst á sjókví.

Fleiri börn en áður verða fyrir heimilisofbeldi. Aukin vitundarvakning um áhrif ofbeldis á börn og breytt verklag lögreglu gæti skýrt fjölgunina.

Nokkur eftirskjálftavirkni hefur verið eftir skjálfta sem var þrír komma sjö stærð, í Holtum í Rangárvallasýslu í morgun.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman til neyðarfundar ósk pólskra stjórnvalda vegna flugs tuga rússneskra dróna inn í pólska lofthelgi í fyrrinótt. Pólskur almenningur er uggandi.

Hæstiréttur hafnaði í gær áfrýjunarbeiðni íþróttafélagsins KA í launadeilu við Arnar Grétarsson, fyrrverandi þjálfara meistaraflokks karla í fótbolta.

Frumflutt

11. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,