Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 4. september 2025

Lögregla var með eftirlit fyrir utan heimili Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, í nótt. Honum bárust hótanir og heimilisfang hans var birt á samfélagsmiðlum.

Stórframkvæmdir í öllum landshlutum, stórfelld einföldun regluverks og atvinnustefnuráð án aðkomu hagsmunahópa er á meðal þess sem er finna í atvinnustefnu stjórnvalda sem forsætisráðherra kynnti í morgun.

Sautján eru látin eftir slys á togbraut í Lissabon í gær. Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Portúgal.

Búið er grípa til víðtækra umbóta þegar kemur brunavörnum eftir eldsvoða á Bræðraborgarstíg fyrir fimm árum. Slökkviliðsstjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir þó erfitt eiga við gráðuga leigusala, sem finni sér glufur í kerfinu.

Leiðtogar fjölda Evrópuríkja hafa setið á fundi í París í morgun og rætt um fyrirkomulag öryggistrygginga fyrir Úkraínu. Þeir ræða við Bandaríkjaforseta í síma síðar í dag.

Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Austurlands telur eftirlitskostnað fyrirtækja stóraukast við það færa verkefni eftirlitsins til tveggja ólíkra stofnana.

Eina raunhæfa leiðin til lækka gjöld fyrir íþróttaiðkun barna er félögin fái meira fjármagn annars staðar frá, segir formaður Vals. Íþróttafélög eigi mörg hver erfitt með endum saman.

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta leikur gegn Frakklandi í lokaleik sínum á Evrópumótinu.

Frumflutt

4. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,