Leiðtogar fjölda Evrópuríkja ætla að fylgja Úkraínuforseta til fundar við Bandaríkjaforseta í Washington á morgun. Utanríkisráðherra Íslands segir að Rússar megi ekki ná sínu fram gagnvart Úkraínu með frekju, yfirgangi og drápum.
Rannsókn máls þar sem grunur leikur á að leikskólastarfsmaður hafi brotið gegn leikskólabarni miðar vel en er á viðkvæmu stigi.
Tugir þúsunda mótmæla ísraelskum stjórnvöldum í Tel Aviv í dag.
Félagar í Veiðifélagi Miðfjarðarár í Vestur-Húnavatnssýslu hafa þverað ána með stórum grjóthnullungum nærri tvö hundrað metra leið. Þeir vilja vera við öllu búnir eftir að eldislaxar úr sjókvíaeldi fundust í Haukadalsá í Dalasýslu fyrir nokkrum dögum.
Ferðum Strætó á höfuðborgarsvæðinu fjölgar til muna frá og með deginum í dag. Ekki eiga að líða nema tíu mínútur á milli vagna á helstu leiðum á annatíma, og strætó stoppar nálægt mun fleiri íbúum en áður.
Hægt hefur á fólksfækkun í flestum sveitarfélögum sem taka þátt í verkefninu Brothættar byggðir. Eftirspurn eftir þátttöku er mikil.
Breiðablik varð bikarmeistari kvenna í fótbolta í gærkvöld. Liðið lenti í erfiðleikum með FH, sem var í úrslitum í fyrsta skipti, en hafði að lokum betur í framlengdum leik.