Óttast er að mörg hundruð eldislaxar séu í Haukadalsá og hafi líklega sloppið úr sjókvíaeldi á Vestfjörðum. Fiskarnir gætu hafa komist í fleiri ár, norskir kafarar verða fengnir til að fanga fiskana.
Atvinnustefna og verðmætasköpun verða stóru viðfangsefni haustsins, segir forsætisráðherra. Ríkisstjórnin hélt sumarfund sinn í Stykkishólmi í dag og ræddi við heimamenn um þau málefni sem brenna á þeim.
Slökkviliðsmenn í Grikklandi hafa náð tökum á gróðureldum. Á Spáni, þar sem einnig loga miklir eldar, fórst slökkviliðsmaður við störf.
Lögregla og sérsveit fóru í umfangsmiklar aðgerðir í Gnoðarvogi í Reykjavík í gærkvöld vegna gruns um að þar væru framleidd fíkniefni. Þar fannst amfetamínbasi og annað óþekkt efni. Fjórir voru handteknir en öllum hefur verið sleppt.
Yfir 40 hafa látist úr kóleru í Darfour-héraði í Súdan á síðastliðinni viku. Læknar án landamæra segja kólerufaraldurinn þar þann skæðasta í áraraðir.
Verðbólguhorfur fyrir haustið eru dökkar að mati Íslandsbanka. Litlar vonir eru um lækkun stýrirvaxta.
Stúdentaráð Háskóla Íslands vill að stúdentagarðar verði byggðir við Birkimel.
Bæði Breiðablik og Víkingur spila mikilvæga Evrópuleiki í fótbolta í kvöld. Breiðablik getur með sigri á bosníska liðinu Zrinjski Mostar tryggt sér sæti í deildarkeppni Evrópukeppni.