Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 8. ágúst 2025

Öryggisráð Ísraelsstjórnar samþykkti í nótt herinn tæki yfir Gaza-borg. Áætlunin hefur víða verið gagnrýnd og Þjóðverjar ætla hætta vopnasölu til Ísraels.

Áhættumat lögreglu og Víkings fyrir leik gegn Bröndby í gær gaf ekki tilefni til aukins viðbúnaðar, sögn lögreglu. Framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Víkings segir lögregla hafi ekki mætt á öryggisfund þrátt fyrir hafa boðað komu sína.

Forsætisráðherra álítur öll samskipti sín við Evrópusambandið hagsmunagæslu. Engar aðildarviðræður verði án samþykkis í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Nýliðun meðal sauðfjárbænda verður ekki meðan reksturinn stendur vart undir sér, mati bændasamtakana. Afurðaverð í komandi sláturtíð er vonbrigði.

Sextíu og fjögur hjúkrunarrými bætast við með nýju hjúkrunarheimili í Kópavogi sem opnað verður formlega í september. Bið eftir hjúkrunarrými hefur aldrei verið lengri.

Skaflinn í Gunnlaugsskarði í Esjunni er horfinn, óvenju snemma - hann hefur tvisvar sinnum áður bráðnað fyrr á árinu, svo vitað sé. Skaflinn hefur verið óformlegur mælikvarði á tíðarfar á suðvesturhorni landsins áratugum saman.

Heyskapur með gamla laginu, traktorafimi og kerruakstur fyrir börn er á dagskrá Hvanneyrarhátíðar sem haldin er í fimmtánda sinn um helgina.

Frumflutt

8. ágúst 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,