Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 4. júlí 2025

Sex eru í haldi vegna rannsóknar lögreglunnar á Norðurlandi á skipulagðri brotastarfsemi víða um land. Tveir voru handteknir við húsleit á höfuðborgarsvæðinu í gær.

Samkomulag um þinglok virðist vera í nánd. Þingfundur hófst klukkan tíu en frumvarp um veiðigjald er ekki á dagskrá.

Á þriðja tug særðust í loftárás Rússa á Úkraínu í nótt, sem Úkraínumenn segja þá umfangsmestu frá upphafi innrásarinnar.

Maður sem myrti móður sína í fyrra var metinn sakhæfur en fangavist þykir ekki gagnast vegna veikinda hans. Maðurinn var sakfelldur og verður settur í öryggisvistun.

Ótækt er Landspítali hafi verið á efsta viðbúnaðarstigi mánuðum saman, segir formaður Læknafélagsins. Hún vonar nýútkomin skýrsla Ríkisendurskoðunar leiði til úrbóta.

Hamas-samtökin funda um tillögu vopnahléi á Gaza með öðrum palestínskum hreyfingum í dag. Ísraelsher hefur drepið 27 á Gaza það sem af er degi.

Búið var boða til vöfflukaffis hjá Ríkissáttasemjara fyrir undirritun nýrra samninga flugmanna Landhelgisgæslunnar - þegar samninganefnd ríkisins hætti við, segir lögfræðingur flugmanna. Samningamenn upplifi skeytingarleysi af hálfu ríkisins.

Hátt í þrjátíu slösuðust í sprengingu við bensínstöð í Róm, höfuborg Ítalíu, í morgun. Líklegt þykir óhapp við áfyllingu eldsneytis hafi valdið sprenginunni.

Frumflutt

4. júlí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,