Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 3. júlí 2025

Forstjóri Landspítala telur krísuviðbrögð hafi ráðið of miklu í heilbrigðiskerfinu. Spítalinn hefur verið á hæsta viðbúnaðarstigi svo mánuðum skiptir vegna manneklu og álags.

Allt er í hnút á Alþingi. Þingmenn allra flokka saka hverjir aðra um slá ítrekað á útrétta sáttahönd, þegar rætt er um hvernig megi ljúka þingstörfum.

Starfsmenn hjá bandarísku fyrirtæki á Gaza segja svo virðist sem gera megi hvað sem er við hungraða Palestínumenn.

Öryggisverðir í matarúthlutun skjóti á fólk sem bíður í röð

Fótboltaheimurinn syrgir portúgalska landsliðmanninn Diogo Jota, sem lék með Liverpool. Hann lést í bílslysi á Spáni í nótt.

Kennarasamband Íslands segir alvarlegt falsað boðsbréf hafi verið sent á kennara í Hofstaðaskóla þegar þeir fóru í fræðsluferð til Frakklands. Ekki er ljóst hvort farið verði fram á endurgreiðslu ferðastyrks.

Nota á gervigreind til efla þjónustu hins opinbera og heilbrigðiskerfisins. Stjórnvöld hafa gefið út fyrstu aðgerðaáætlun sína um gervigreind.

Dragspilið dunar á Reyðarfirði um helgina. Þar hefst Landsmót íslenskra harmonikkufélaga í dag.

Lögreglan hefur miklar áhyggjur af hraðakstri á höfuðborgarsvæðinu. Nokkrir hafa verið sviptir ökuréttindum nærri framkvæmdum á Kringlumýrabraut undanfarna daga.

Frumflutt

3. júlí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,