Dæmdir glæpamenn eru í hópi þeirra 46 Íslendinga sem írska og íslenska lögreglan tók skýrslu af í vikunni í tengslum við hvarf Jóns Þrastar Jónssonar. Málið er enn rannsakað sem mannshvarf, þrátt fyrir kenningar um manndráp.
Íbúar á Þingeyri eru uggandi yfir fyrirætlunum Arctic Fish um að flytja fóðurstöð sína á Ísafjörð. Við það tapast níu störf úr bænum.
Ný framkvæmdastjórn Sósíalistaflokks Íslands hefur kært þrjá félaga í flokknum til lögreglu fyrir efnahagsbrot. Kæran tengist deilu um fjármuni sem hafa runnið til Vorstjörnunnar, styrktarfélags flokksins.
Maður féll útbyrðis af ferjunni Norrænu í gær. Ólíklegt þykir að maðurinn finnist.
Bresk stjórnvöld og ísraelska sendiráðið í Bretlandi fordæma ummæli hljómsveita sem komu fram á Glastonbury hátíðinni í gær. Lögreglan hefur hafið rannsókn á málinu.
Eina segulómtækið á Landspítalanum við Hringbraut er enn óvirkt eftir að skúringatæki festist við það um miðjan mánuð. Beðið er eftir þúsund lítrum af helíni til að keyra það upp að nýju.