Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 26. júní 2025

Barnavernd fékk tíu prósentum fleiri tilkynningar í fyrra en hittifyrra. Tilkynningum vegna neyslu barna á vímuefnum eða öðrum skaðlegum efnum fjölgaði um 60 prósent á milli ára.

Æðstiklerkur Írans segir staðhæfingar um Bandaríkin hafi gjöreyðilagt kjarnorkuinnviði landsins vera stórlega ýktar. Hann ávarpaði írönsku þjóðina í morgun í fyrsta sinn síðan vopnahlé Ísraela og Írana tók gildi.

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna ræða hvernig fjármagna á aukin útgjöld til varnar- og öryggismála, eftir samþykkt á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í gær. Fundur leiðtoga ESB hófst í Brussel í morgun.

Mörg dæmi eru um tjón í eldsvoða hafi ekki fengist bætt fullu, því brunabótamat fasteignar hafði ekki verið uppfært. Húseigendur bera ábyrgð á uppfærslu.

Áfram er rætt um veiðigjaldsfrumvarp ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag. Ekki hefur náðst samkomulag um þinglok og afgreiðslu mála.

Tíu ár eru síðan lúsmý fór bíta mann og annan og sjúga úr þeim blóð hérlendis. Ýmis ráð eru til verjast flugunum og slá á kláðann.

Frumflutt

26. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,