Barnavernd fékk tíu prósentum fleiri tilkynningar í fyrra en hittifyrra. Tilkynningum vegna neyslu barna á vímuefnum eða öðrum skaðlegum efnum fjölgaði um 60 prósent á milli ára.
Æðstiklerkur Írans segir staðhæfingar um að Bandaríkin hafi gjöreyðilagt kjarnorkuinnviði landsins vera stórlega ýktar. Hann ávarpaði írönsku þjóðina í morgun í fyrsta sinn síðan vopnahlé Ísraela og Írana tók gildi.
Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna ræða hvernig fjármagna á aukin útgjöld til varnar- og öryggismála, eftir samþykkt á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í gær. Fundur leiðtoga ESB hófst í Brussel í morgun.
Mörg dæmi eru um að tjón í eldsvoða hafi ekki fengist bætt að fullu, því brunabótamat fasteignar hafði ekki verið uppfært. Húseigendur bera ábyrgð á uppfærslu.
Áfram er rætt um veiðigjaldsfrumvarp ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag. Ekki hefur náðst samkomulag um þinglok og afgreiðslu mála.
Tíu ár eru síðan lúsmý fór að bíta mann og annan og sjúga úr þeim blóð hérlendis. Ýmis ráð eru til að verjast flugunum og slá á kláðann.