Hátt í sjö hundruð hafa verið drepin í árásum Ísraelshers á Íran, frá því átök brutust út milli ríkjanna fyrir rúmri viku. Ísraelsher segist hafa skotið niður fjölda eldflauga Íranshers í nótt.
Spænsk stjórnvöld hafna áformum um að auka útgjöld til varnar og öryggismála, eins og til hefur staðið að samþykkja á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í næstu viku. Áætlunin var sett saman, ekki síst til að friða Donald Trump bandaríkjaforseta, sem þrýst hefur á önnur NATO ríki um að leggja meira til varnarmála.
Aðeins eitt mál er á dagskrá þingfundar sem hófst á Alþingi í morgun - það er veiðigjaldsfrumvarp atvinnuvegaráðherra. Formaður þingflokks Samfylkingarinnar gagnrýnir að stjórnarandstaðan ætli að beita málþófi til að koma í veg fyrir afgreiðslu málsins.
Fasteignasalar telja fasteignamarkaðinn frekar vera á valdi kaupenda en seljenda samkvæmt skoðanakönnun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Formaður félags fasteignasala segir fasteignamarkað sveiflukenndan og ekki að ekki sé ástæða til að hafa áhyggjur af stöðunni.
Lögreglan á Suðurnesjum vill að hægt sé að afturkalla vegabréfsáritanir útlendinga til Íslands ef í ljós kemur að þeir ætla ekki að koma til landsins.
Skagamenn hafa ráðið Lárus Orra Sigurðsson sem þjálfara karlaliðs félagsins í fótbolta. Lárus stýrir liðinu út leiktíðina.