Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 21. júní 2025

Hátt í sjö hundruð hafa verið drepin í árásum Ísraelshers á Íran, frá því átök brutust út milli ríkjanna fyrir rúmri viku. Ísraelsher segist hafa skotið niður fjölda eldflauga Íranshers í nótt.

Spænsk stjórnvöld hafna áformum um auka útgjöld til varnar og öryggismála, eins og til hefur staðið samþykkja á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í næstu viku. Áætlunin var sett saman, ekki síst til friða Donald Trump bandaríkjaforseta, sem þrýst hefur á önnur NATO ríki um leggja meira til varnarmála.

Aðeins eitt mál er á dagskrá þingfundar sem hófst á Alþingi í morgun - það er veiðigjaldsfrumvarp atvinnuvegaráðherra. Formaður þingflokks Samfylkingarinnar gagnrýnir stjórnarandstaðan ætli beita málþófi til koma í veg fyrir afgreiðslu málsins.

Fasteignasalar telja fasteignamarkaðinn frekar vera á valdi kaupenda en seljenda samkvæmt skoðanakönnun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Formaður félags fasteignasala segir fasteignamarkað sveiflukenndan og ekki ekki ástæða til hafa áhyggjur af stöðunni.

Lögreglan á Suðurnesjum vill hægt afturkalla vegabréfsáritanir útlendinga til Íslands ef í ljós kemur þeir ætla ekki koma til landsins.

Skagamenn hafa ráðið Lárus Orra Sigurðsson sem þjálfara karlaliðs félagsins í fótbolta. Lárus stýrir liðinu út leiktíðina.

Frumflutt

21. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,