Nokkrir voru handteknir í aðgerðum lögreglu á nokkrum stöðum á landinu í gær. Þetta er afrakstur mánaða rannsóknar lögreglu á skipulagðri brotastarfsemi, sem talin er tengjast fíkniefnaframleiðslu meðal annars á Raufarhöfn.
Ísraelar heita hefndum fyrir loftárás Írana á sjúkrahús í Suður- Ísrael. Utanríkisráðherra Írans ætlar að hitta evrópska utanríkisráðherra og ræða kjarnorkuáætlun landsins. Þetta er sjöundi sólarhringur árása Ísraela og Írana.
Önnur umræða um veiðigjaldsfrumvarp ríkisstjórnarinnar heldur áfram á Alþingi í dag. Ekkert samkomulag er um afgreiðslu mála á þingi.
Mikið tjón varð í eldi í Efnalauginni Björgu við Háaleitisbraut í Reykjavík í nótt. Eigandinn ætlar að opna aftur sem fyrst.
Yfir tvö hundruð og fimmtíu björgunarsveitarmenn á höfuðborgarsvæðinu hafa leitað að Sigríði Jóhannsdóttur. Hennar hefur verið saknað frá því á föstudag.
Borgarstjóri Búdapest í Ungverjalandi er staðráðinn í að halda gleðigöngu hinsegin fólks í lok júní þrátt fyrir bann stjórnvalda og lögreglu.
Hólavallagarður í Reykjavík var friðlýstur í morgun. Umhverfisráðherra segir friðlýsinguna á kirkjugarðinum mikilvægan áfanga í verndun menningarsögulegra minja.