Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 19. júní 2025

Nokkrir voru handteknir í aðgerðum lögreglu á nokkrum stöðum á landinu í gær. Þetta er afrakstur mánaða rannsóknar lögreglu á skipulagðri brotastarfsemi, sem talin er tengjast fíkniefnaframleiðslu meðal annars á Raufarhöfn.

Ísraelar heita hefndum fyrir loftárás Írana á sjúkrahús í Suður- Ísrael. Utanríkisráðherra Írans ætlar hitta evrópska utanríkisráðherra og ræða kjarnorkuáætlun landsins. Þetta er sjöundi sólarhringur árása Ísraela og Írana.

Önnur umræða um veiðigjaldsfrumvarp ríkisstjórnarinnar heldur áfram á Alþingi í dag. Ekkert samkomulag er um afgreiðslu mála á þingi.

Mikið tjón varð í eldi í Efnalauginni Björgu við Háaleitisbraut í Reykjavík í nótt. Eigandinn ætlar opna aftur sem fyrst.

Yfir tvö hundruð og fimmtíu björgunarsveitarmenn á höfuðborgarsvæðinu hafa leitað Sigríði Jóhannsdóttur. Hennar hefur verið saknað frá því á föstudag.

Borgarstjóri Búdapest í Ungverjalandi er staðráðinn í halda gleðigöngu hinsegin fólks í lok júní þrátt fyrir bann stjórnvalda og lögreglu.

Hólavallagarður í Reykjavík var friðlýstur í morgun. Umhverfisráðherra segir friðlýsinguna á kirkjugarðinum mikilvægan áfanga í verndun menningarsögulegra minja.

Frumflutt

19. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,