Afrit af tölvum bankastjóra Glitnis, símtöl við viðskiptavini og viðkvæm tölvupóstssamskipti eru í gagnasafni sem fyrirtækið PPP fékk aðgang að í gegnum slitastjórn Glitnis. Gögnin voru áfram í vörslu PPP löngu eftir að þeim hefði átt að vera eytt.
Bandaríkjaforseti er sagður íhuga að taka þátt í árásum á kjarnorkuinnviði í Íran. Æðsti leiðtogi Írans segir hvers kyns íhlutun Bandaríkjahers hefði óafturkræfar afleiðingar.
Fjölga verður sjúkrabílum eða dreifa þeim betur um Suðausturland á veturna að mati Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Sjúkrabíll var þrjú korter á vettvang banaslyss við Skaftafell í fyrra.
Veiðigjaldsfrumvarp ríkisstjórnarinnar er á dagskrá Alþingis eftir hádegi. Stór hluti morgunsins fór í deilur stjórnarliða og stjórnarandstæðinga um hvort þingmenn hefðu fengið allar nauðsynlegar upplýsingar.
Áætlun um stóraukin útgjöld til varnarmála verður samþykkt á fundi leiðtoga NATO-ríkjanna í Hollandi í næstu viku. Spurningar hafa vaknað um samstöðu ríkjanna gagnvart Rússlandi og Úkraínu.
Framsóknarflokkurinn myndi þurrkast út í borgarstjórn samkvæmt nýrri könnun. Fylgið hefur ekkert aukist frá því flokkurinn sleit meirihlutasamstarfi. Samfylkingin bætir við sig fylgi.
Mótsstjórn ÍBV bárust nokkrar tilkynningar um óviðeigandi hegðun foreldra á TM móti stúlkna í Vestmannaeyjum um helgina. Dæmi eru um að foreldrar hafi hrópað ókvæðisorð að keppendum.