Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 18. júní 2025

Afrit af tölvum bankastjóra Glitnis, símtöl við viðskiptavini og viðkvæm tölvupóstssamskipti eru í gagnasafni sem fyrirtækið PPP fékk aðgang í gegnum slitastjórn Glitnis. Gögnin voru áfram í vörslu PPP löngu eftir þeim hefði átt vera eytt.

Bandaríkjaforseti er sagður íhuga taka þátt í árásum á kjarnorkuinnviði í Íran. Æðsti leiðtogi Írans segir hvers kyns íhlutun Bandaríkjahers hefði óafturkræfar afleiðingar.

Fjölga verður sjúkrabílum eða dreifa þeim betur um Suðausturland á veturna mati Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Sjúkrabíll var þrjú korter á vettvang banaslyss við Skaftafell í fyrra.

Veiðigjaldsfrumvarp ríkisstjórnarinnar er á dagskrá Alþingis eftir hádegi. Stór hluti morgunsins fór í deilur stjórnarliða og stjórnarandstæðinga um hvort þingmenn hefðu fengið allar nauðsynlegar upplýsingar.

Áætlun um stóraukin útgjöld til varnarmála verður samþykkt á fundi leiðtoga NATO-ríkjanna í Hollandi í næstu viku. Spurningar hafa vaknað um samstöðu ríkjanna gagnvart Rússlandi og Úkraínu.

Framsóknarflokkurinn myndi þurrkast út í borgarstjórn samkvæmt nýrri könnun. Fylgið hefur ekkert aukist frá því flokkurinn sleit meirihlutasamstarfi. Samfylkingin bætir við sig fylgi.

Mótsstjórn ÍBV bárust nokkrar tilkynningar um óviðeigandi hegðun foreldra á TM móti stúlkna í Vestmannaeyjum um helgina. Dæmi eru um foreldrar hafi hrópað ókvæðisorð keppendum.

Frumflutt

18. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,