Hátt í fjögur hundruð mál komu til kasta lögreglunnar á Akureyri um helgina, þar af tvö kynferðisbrotamál og alvarleg líkamsárás. Flest tengjast árlegum Bíladögum á Akureyri.
Ísraelar segja að árásum á Íran verði haldið áfram þar til vopn Írana ógna ekki lengur tilvist þeirra. Á þriðja hundrað hafa fallið í árásum síðustu daga, flestir í Íran.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur rætt við frönsku lögregluna vegna rannsóknar á andláti karlmanns og dóttur hans á hóteli í miðbænum um helgina.
Þingflokksformenn segja viðræður um þinglok þokast í átt að samkomulagi - en ekki sér til lands.
Samtal flugmanna og viðvörunarhljóð heyrast á upptöku úr flugstjórnarklefa flugvélar Air India sem hrapaði í síðustu viku.
57 ára karlmaður hefur verið handtekinn í Bandaríkjunum grunaður um að hafa myrt þingmann Demókrata, og eiginmann hennar á laugardag.
Mögulega úrelt verkaskipting á milli RARIK og Landsnets tefur uppbygging á nýjum raflínum til Þórshafnar og Víkur í Mýrdal. RARIK segir Landsnet ætla að skilja ákveðin landsvæði eftir í kerfisáæltun.
Kjörsókn jókst lítillega hjá kjósendum 35 ára og yngri í síðustu alþingiskosningum. Kosningaþátttaka var meiri hjá konum en körlum.
Jón Þór Hauksson hefur látið af störfum sem þjálfari ÍA í Bestu deild karla í fótbolta. Skagamenn sitja í botnsæti deildarinnar með níu stig eftir ellefu leiki.