Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 16. júní 2025

Hátt í fjögur hundruð mál komu til kasta lögreglunnar á Akureyri um helgina, þar af tvö kynferðisbrotamál og alvarleg líkamsárás. Flest tengjast árlegum Bíladögum á Akureyri.

Ísraelar segja árásum á Íran verði haldið áfram þar til vopn Írana ógna ekki lengur tilvist þeirra. Á þriðja hundrað hafa fallið í árásum síðustu daga, flestir í Íran.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur rætt við frönsku lögregluna vegna rannsóknar á andláti karlmanns og dóttur hans á hóteli í miðbænum um helgina.

Þingflokksformenn segja viðræður um þinglok þokast í átt samkomulagi - en ekki sér til lands.

Samtal flugmanna og viðvörunarhljóð heyrast á upptöku úr flugstjórnarklefa flugvélar Air India sem hrapaði í síðustu viku.

57 ára karlmaður hefur verið handtekinn í Bandaríkjunum grunaður um hafa myrt þingmann Demókrata, og eiginmann hennar á laugardag.

Mögulega úrelt verkaskipting á milli RARIK og Landsnets tefur uppbygging á nýjum raflínum til Þórshafnar og Víkur í Mýrdal. RARIK segir Landsnet ætla skilja ákveðin landsvæði eftir í kerfisáæltun.

Kjörsókn jókst lítillega hjá kjósendum 35 ára og yngri í síðustu alþingiskosningum. Kosningaþátttaka var meiri hjá konum en körlum.

Jón Þór Hauksson hefur látið af störfum sem þjálfari ÍA í Bestu deild karla í fótbolta. Skagamenn sitja í botnsæti deildarinnar með níu stig eftir ellefu leiki.

Frumflutt

16. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,