Lögregla beitti táragasi og skaut gúmmíkúlum að mótmælendum í Los Angeles í gærkvöld. Þetta er þriðja kvöldið í röð sem mótmælendur koma saman í borginni til að mótmæla aukinni hörku Trump-stjórnarinnar í innflytjendamálum.
Formaður læknafélagsins segir nýjan kjarasamning geta laðað íslenska sérgreinalækna aftur heim. Kostnaður vegna innleiðingar samningsins mun ekki liggja fyrir fyrr en í haust.
Ísraelskir hermenn stöðvuðu í nótt skip Grétu Thunberg og fleiri aðgerðarsinna sem var á leið til Gazastrandarinnar með farm af hjálpargögnum. Skipverjar voru handteknir og verða sendir aftur til síns heima.
Betur fór en á horfðist þegar óttast var að tankur með fosfórsýru læki á flutningaskip í Akureyrarhöfn. Slökkviliðið segir að ekki hafi lekið úr tankinum og hefur unnið síðasta sólarhringinn að því að tæma hann. Höfnin var rýmd um tíma í gær í öryggisskyni.
Sveitarfélagið Árborg hefur bæst í svokallað seyruverkefni, þar sem úrgangi úr rotþróm er breytt í áburð til landuppgræðslu. Skrifstofustjóri segir helstu áskorunina við verkefnið vera rusl sem fólk sturtar niður, til dæmis blautþurrkum sem eiga ekki heima þar.
Matur, dans og söngur frá hinum ýmsu menningarheimum setja mark sitt á húsdýragarðinn í dag.
8-liða úrslit í Mjólkurbikar kvenna í fótbolta hefjast í dag með einum leik. Tindastóll og ÍBV berjast þá um fyrsta lausa sætið í undanúrslitum keppninnar.