Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 9. júní 2025

Lögregla beitti táragasi og skaut gúmmíkúlum mótmælendum í Los Angeles í gærkvöld. Þetta er þriðja kvöldið í röð sem mótmælendur koma saman í borginni til mótmæla aukinni hörku Trump-stjórnarinnar í innflytjendamálum.

Formaður læknafélagsins segir nýjan kjarasamning geta laðað íslenska sérgreinalækna aftur heim. Kostnaður vegna innleiðingar samningsins mun ekki liggja fyrir fyrr en í haust.

Ísraelskir hermenn stöðvuðu í nótt skip Grétu Thunberg og fleiri aðgerðarsinna sem var á leið til Gazastrandarinnar með farm af hjálpargögnum. Skipverjar voru handteknir og verða sendir aftur til síns heima.

Betur fór en á horfðist þegar óttast var tankur með fosfórsýru læki á flutningaskip í Akureyrarhöfn. Slökkviliðið segir ekki hafi lekið úr tankinum og hefur unnið síðasta sólarhringinn því tæma hann. Höfnin var rýmd um tíma í gær í öryggisskyni.

Sveitarfélagið Árborg hefur bæst í svokallað seyruverkefni, þar sem úrgangi úr rotþróm er breytt í áburð til landuppgræðslu. Skrifstofustjóri segir helstu áskorunina við verkefnið vera rusl sem fólk sturtar niður, til dæmis blautþurrkum sem eiga ekki heima þar.

Matur, dans og söngur frá hinum ýmsu menningarheimum setja mark sitt á húsdýragarðinn í dag.

8-liða úrslit í Mjólkurbikar kvenna í fótbolta hefjast í dag með einum leik. Tindastóll og ÍBV berjast þá um fyrsta lausa sætið í undanúrslitum keppninnar.

Frumflutt

9. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,