Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 8. júní 2025

Trump Bandaríkjaforseti hefur sent tvö þúsund þjóðvarðaliða til Los Angeles, til þess stöðva mótmæli gegn aðgerðum innflytjendastofnunarinnar. Ríkisstjóri Kaliforníu segir Trump hella olíu á eldinn með ákvörðun sinni.

Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir afar erfitt stýra hegðun ferðamanna á ferðalagi um Ísland. Hann segir ekki sérstakar áhyggjur innan ferðaþjónustunnar af öryggi ferðamanna innan ferðaþjónustunnar vegna einstakra tilvika eða slysa.

Þreifingar um þinglok eru hafnar á Alþingi. Samtöl formanna þingflokka eru rétt hefjast en staðan skýrist líklega þegar líður á vikuna.

Doktor í lyfjafræði segir stíga þurfi varlega til jarðar við nota lyf eins og Ozemic við fíknisjúkdómum. Óvíst hvenær lyfin gætu verið samþykkt fyrir slíka notkun.

Ítalir kjósa í dag um hvort gera eigi börnum innflytjenda auðveldara fyrir verða ríkisborgarar. Stjórnarandstaða segir ríkisstjórnina hafa stuðlað dræmri kjörsókn.

Talsvert er um fugladauða á þjóðvegum, náttúrufræðingur segir mestu hættuna snemma á morgnana þegar fuglarnir liggja í vegköntum.

Hátt í helmingur landsmanna tekur aldrei lýsi samkvæmt nýrri könnun. Daglegur lýsisskammtur virðist vera fastur liður hjá sumum meðan aðrir segja það einfaldlega of vont á bragðið.

Frumflutt

8. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,