Trump Bandaríkjaforseti hefur sent tvö þúsund þjóðvarðaliða til Los Angeles, til þess að stöðva mótmæli gegn aðgerðum innflytjendastofnunarinnar. Ríkisstjóri Kaliforníu segir Trump hella olíu á eldinn með ákvörðun sinni.
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir afar erfitt að stýra hegðun ferðamanna á ferðalagi um Ísland. Hann segir ekki sérstakar áhyggjur innan ferðaþjónustunnar af öryggi ferðamanna innan ferðaþjónustunnar vegna einstakra tilvika eða slysa.
Þreifingar um þinglok eru hafnar á Alþingi. Samtöl formanna þingflokka eru rétt að hefjast en staðan skýrist líklega þegar líður á vikuna.
Doktor í lyfjafræði segir að stíga þurfi varlega til jarðar við að nota lyf eins og Ozemic við fíknisjúkdómum. Óvíst sé hvenær lyfin gætu verið samþykkt fyrir slíka notkun.
Ítalir kjósa í dag um hvort gera eigi börnum innflytjenda auðveldara fyrir að verða ríkisborgarar. Stjórnarandstaða segir ríkisstjórnina hafa stuðlað að dræmri kjörsókn.
Talsvert er um fugladauða á þjóðvegum, náttúrufræðingur segir mestu hættuna snemma á morgnana þegar fuglarnir liggja í vegköntum.
Hátt í helmingur landsmanna tekur aldrei lýsi samkvæmt nýrri könnun. Daglegur lýsisskammtur virðist vera fastur liður hjá sumum meðan aðrir segja það einfaldlega of vont á bragðið.