Bændur keppast við að koma fé í skjól víða á Norður- og Austurlandi. Veðurstofan spáir hvassviðri og hríð um allt land í dag og á morgun og engu ferðaveðri.
Karol Nawrocki, þjóðernissinnaður sagnfræðingur, verður næsti forseti Póllands eftir nauman sigur í seinni umferð kosninga í gær. Búast má við að sigurinn gefi hægri flokkum byr undir báða vængi.
Rússar og Úkraínumenn funda í Istanbúl um leiðir til að ljúka stríðinu. Ekkert lát er á árásum á báða bóga og litlar vonir eru bundnar við fundinn.
Björgólfur Thor Björgólfsson segir að framganga fyrirtækisins PPP hafi komið honum í opna skjöldu. Hann hafi ekki séð upptökur sem fjallað var um í Kveik fyrr en þátturinn var sýndur.
Notkun níkótíns hjá íslenskum ungmennum er sú mesta á Norðurlöndum segir verkefnastjóri hjá embætti Landlæknis. Mikilvægt sé að bregðast við og breyta lögum.
Hinn 17 ára Oscar Florez verður fluttur úr landi í nótt til Kólumbíu í fylgd lögreglu og barnaverndar. Aðstandendur hans sendu Útlendingastofnun læknisvottorð fyrir helgi.
Kínverska netmarkaðstorgið Shein á yfir höfði sér sektir frá Evrópusambandinu vegna brota á neytendalögum; blekkjandi tilboða og misvísandi upplýsinga um vörur, sem innihaldi margar skaðleg efni.
Tveir skjálftar stærri en þrír mældust við Grjótárvatn á Vesturlandi í morgun.