Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 2. júní 2025

Bændur keppast við koma í skjól víða á Norður- og Austurlandi. Veðurstofan spáir hvassviðri og hríð um allt land í dag og á morgun og engu ferðaveðri.

Karol Nawrocki, þjóðernissinnaður sagnfræðingur, verður næsti forseti Póllands eftir nauman sigur í seinni umferð kosninga í gær. Búast við sigurinn gefi hægri flokkum byr undir báða vængi.

Rússar og Úkraínumenn funda í Istanbúl um leiðir til ljúka stríðinu. Ekkert lát er á árásum á báða bóga og litlar vonir eru bundnar við fundinn.

Björgólfur Thor Björgólfsson segir framganga fyrirtækisins PPP hafi komið honum í opna skjöldu. Hann hafi ekki séð upptökur sem fjallað var um í Kveik fyrr en þátturinn var sýndur.

Notkun níkótíns hjá íslenskum ungmennum er mesta á Norðurlöndum segir verkefnastjóri hjá embætti Landlæknis. Mikilvægt bregðast við og breyta lögum.

Hinn 17 ára Oscar Florez verður fluttur úr landi í nótt til Kólumbíu í fylgd lögreglu og barnaverndar. Aðstandendur hans sendu Útlendingastofnun læknisvottorð fyrir helgi.

Kínverska netmarkaðstorgið Shein á yfir höfði sér sektir frá Evrópusambandinu vegna brota á neytendalögum; blekkjandi tilboða og misvísandi upplýsinga um vörur, sem innihaldi margar skaðleg efni.

Tveir skjálftar stærri en þrír mældust við Grjótárvatn á Vesturlandi í morgun.

Frumflutt

2. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,