Strandveiðisjómenn saka atvinnuvegaráðherra um svik vegna þeirra breytinga sem ráðherra ætlar að gera á fyrirkomulagi strandveiða.
Erindreki Bandaríkjanna er vongóður um að sátt náist um nýja tillögu að vopnahléi á Gaza. Ísraelar höfnuðu fyrri tillögu á mánudag sem Hamas voru reiðubúin að samþykkja.
Hæstiréttur hefur ákveðið að taka aftur fyrir mál sem snýr að umdeildu húsnæðisláni með breytilegum vöxtum. Héraðsdómur hafði áður sýknað Íslandsbanka af kröfu lántakenda.
Ekkert verður af sameiningu sveitarfélaga á Suðurnesjum á þessu kjörtímabili. Óformlegar viðræður höfðu farið fram milli þriggja sveitarfélaga en þeim verður ekki framhaldið.
Dómstóll í Bandaríkjunum hefur sett lögbann á innflutningstolla Donalds Trump. Úrskurðinum hefur þegar verið áfrýjað.
Það er boðið upp á hátíðarhöld í Grindavík í dag þar sem bæjarbúar og gestir taka forskot á sjómannadagssæluna.
Ísland mætir Noregi annað kvöld í Þjóðadeild kvenna í fótbolta. Liðin mættust einnig í síðasta mánuði og gerðu þá markalaust jafntefli.