Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 29. maí 2025

Strandveiðisjómenn saka atvinnuvegaráðherra um svik vegna þeirra breytinga sem ráðherra ætlar gera á fyrirkomulagi strandveiða.

Erindreki Bandaríkjanna er vongóður um sátt náist um nýja tillögu vopnahléi á Gaza. Ísraelar höfnuðu fyrri tillögu á mánudag sem Hamas voru reiðubúin samþykkja.

Hæstiréttur hefur ákveðið taka aftur fyrir mál sem snýr umdeildu húsnæðisláni með breytilegum vöxtum. Héraðsdómur hafði áður sýknað Íslandsbanka af kröfu lántakenda.

Ekkert verður af sameiningu sveitarfélaga á Suðurnesjum á þessu kjörtímabili. Óformlegar viðræður höfðu farið fram milli þriggja sveitarfélaga en þeim verður ekki framhaldið.

Dómstóll í Bandaríkjunum hefur sett lögbann á innflutningstolla Donalds Trump. Úrskurðinum hefur þegar verið áfrýjað.

Það er boðið upp á hátíðarhöld í Grindavík í dag þar sem bæjarbúar og gestir taka forskot á sjómannadagssæluna.

Ísland mætir Noregi annað kvöld í Þjóðadeild kvenna í fótbolta. Liðin mættust einnig í síðasta mánuði og gerðu þá markalaust jafntefli.

Frumflutt

29. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,