Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 17. maí 2025

Framferði Ísraelshers á Gaza jafngildir þjóðernishreinsunum segir Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna. Skipulagðar árásir á sjúkrahús, eyðilegging heilu byggðarlagana og hindrun á afhendingu hjálpargagna séu brot á alþjóðalögum.

Foreldrar barna á meðferðarheimilinu Stuðlum kalla eftir aðgerðum í málefnum barna í vanda. Þau segja erfitt horfa upp á börn sín innan um önnur sem hafa jafnvel framið alvarleg afbrot.

Langvarandi dvöl inn á bráðasjúkrahúsi skerðir lífsgæði, segir forstjóri Landspítalans. Hann vonast til hægt verði stytta biðlista eftir hjúkrunarrýmum til spítalinn geti betur sinnt verkefnum sem þar eigi heima.

Raforkuöryggi Grindavíkur er ófullnægjandi mati bæjarráðs. Bæjarstjóri segir nýjan og öflugri rafstreng væntanlegan.

Umboðsmaður barna segir öryggi barna og friðhelgi einkalífs þeirra ógnað með samfélagsmiðlum. Hún segir fulla ástæðu til hafa áhyggjur af því börn eigi sína eigin samfélagsmiðlareikninga eða séu mjög sýnileg á reikningum foreldra sinna, sem eru áhrifavaldar.

Í kvöld er komið úrslitastund í Eurovison. Væb-hópurinn eru tíundu á svið, en dómararennslið í gærkvöldi gekk vel.

Fjölskyldufólk lagði land undir fót og skellti sér austur í blíðuna til Atlavíkur. Spáð er yfir tuttugu stiga hita á Hallormsstað næstu daga.

Kvennalið Vals í handbolta spilar í dag hreinan úrslitaleik um Evrópubikarinn á Hlíðarenda. Þetta er stærsti íþróttaviðburður sem haldinn hefur verið á Íslandi mati þjálfara liðsins.

Frumflutt

17. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,