Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 12. maí 2025

Forsætisráðherra átti fund í Þórshöfn í Færeyjum í dag um öryggi á norðurslóðum með forsætisráðherra Danmerkur og Noregs formanni landstjórnar Grænlands, lögmanni Færeyja og forsætisráðherra Noregs.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leggur til róttækar breytingar á eftirliti með byggingaframkvæmdum. Kaupendur nýbygginga verði tryggðir fyrir göllum í 10 ár frá því húsnæði er tekið í notkun.

Kína og Bandaríkin hafa ákveðið ætla lækka gagnkvæma tolla um 115 prósent í 90 daga. Fjármálaráðherra Bandaríkjanna vonar viðræður haldi áfram og leiði til aukinna viðskipta milli ríkjanna.

Formaður Öryrkjabandalags Íslands segir það mannréttindabrot Sjúkratryggingar Íslands hafi neitað daufblindum manni um túlkaþjónustu; ekki gildi sama um hjálpartæki fyrir blinda, heyrnalausa og daufblinda.

Tún í Skagafirði ættu vera eru vel nærð eftir mikla vatnavexti í síðustu viku en fjöldi fugla glataði hreiðrum sínum. Fuglar sitja hins vegar margir eftir í sárum og hafa misst hreiður sín.

Nokkrir jarðskjálftar um og undir tveimur stærð mældust við Grjótárvatn í stuttri hrinu í morgun. Engin aflögun er á yfirborði og engin merki um gosóróa í Ljósufjallakerfinu.

Kona á Seyðisfirði segir ómögulegt sonur hennar eyði sumrinu í tölvunni inni í myrkvuðu herbergi. Lítið er um sumarstörf fyrir 16 og 17 ára ungmenni og heimastjórnin hvetur Múlaþing til bjóða aldurshópnum garðyrkjustörf.

Alexander Rafn Pálmason varð um helgina yngsti markaskorari í sögu efstu deildar í fótbolta. Hann er nýorðinn fimmtán ára.

Frumflutt

12. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,