Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 16. apríl 2025

Óhagnaðardrifin íbúðafélög eru nauðsynleg til tekjulágt fólk hafi þak yfir höfuðið, segir forseti ASÍ. Hundruð fjölskyldna njóti góðs af niðurgreiðslu íbúða. Stefna Reykjavíkurborgar meginástæða húsnæðisvandans.

Langdrægar stýriflaugar sem Úkraínumenn hafa lengi beðið Þjóðverja um gætu verið á leiðinni innan skamms. Verðandi kanslari Þýskalands segist tilbúinn stíga þetta skref í samráði við önnur Evrópuríki.

Íslendingar hafa tapað tugum þúsunda króna á svikasíðum sem virðast bjóða upp á rafrænt ferðaleyfi til Bretlands. Utanríkisráðuneytið hvetur fólk til vera á varðbergi.

Lögbundin skilgreining á konu í breskum mannréttindalögum er hafa fæðst sem kona. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar Bretlands í máli sem skosk kvenréttindasamtök höfðuðu.

Samdráttur gæti orðið í íslenskri ferðaþjónustu á árinu vegna sviptinga í alþjóðaviðskiptum. Minnkandi áhugi Evrópubúa á ferðum til Bandaríkjanna hefur áhrif, en hagfræðingur segir það geti líka skapað tækifæri.

Fjölsótt samverustund var í gær í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra vegna bílslyss við Hofsós fyrir helgi. Þrír drengir af fjórum sem fluttir voru á gjörgæslu eftir slysið hafa verið útskrifaðir þaðan.

Hakkarar settu upptökur sem gerðu grín Elon Musk og Mark Zuckerberg í gangbrautarljós í Kaliforníu. Ekki er vitað hverjir stóðu á bak við það.

Austfirðingar eiga fulltrúa í efstu deild kvenna í fótbolta í fyrsta sinn í 30 ár. Rósey Björgvinsdóttir fyrirliði liðsins segir mikla spennu í samfélaginu.

Frumflutt

16. apríl 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,