Hlutabréf hafa hríðfallið um allan heim eftir tollahækkanir Bandaríkjaforseta, sem eru umfangsmeiri en gert hafði verið ráð fyrir, að mati fjármálafræðings. Vísitalan í Hong Kong féll um rúm þrettán prósent; það mesta á einum degi í tæpa þrjá áratugi.
Markaðsvirði fyrirtækja í kauphöllinni hér á landi hefur lækkað um fjögur hundruð milljarða frá mánaðamótum.
Utanríkisráðherra Noregs segist hóflega bjartsýnn á að norsk og íslensk stjórnvöld fái skjól fyrir mögulegum mótaðgerðum Evrópusambandsins vegna tollahækkana. Forsætisráðherrar beggja ríkja eiga fund með leiðtogum ESB í þessari viku.
Kvikusöfnun undir Svartsengi og landris heldur áfram. Jarðeðlisfræðingur segir það ekki endilega þýða að það gjósi aftur en eftir því sem meiri kvika flæði inn aukist líkurnar á því.
Umræður um fjármálaáætlun halda áfram á Alþingi í dag. Málið var tekið af dagskrá í síðustu viku.
Friðrik Ólafsson fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák, er látinn 90 ára að aldri.
300 bú fá yfir sjö hundruð milljónir í bætur vegna tjóns í óvenjuslæmri tíð í fyrra.
Hljómsveitin Geðbrigði unnu Músíktilraunir í gær. Hljómsveitin fékk einnig viðurkenningu fyrir textagerð á íslensku.