Bjarni Benediktsson segir þetta hárréttan tíma fyrir sig og Sjálfstæðisflokkinn að hann hætti í stjórnmálum. Hann sjái ekki eftir þeirri ákvörðun. Framtíðin sé óráðin. Í dag hefst Landsfundur flokksins sem Bjarni ávarpar í síðasta sinn sem formaður.
Zelensky Úkraínuforseti kemur til fundar við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í dag. Merki eru um þíðu þeirra á milli
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann á miðvikudag, grunaðan um að hafa keypt aðgang að barnaníðsefni sem var búið til með gervigreind. Víða ná engin lög yfir slík brot.
Bæjarstjórinn í Kópavogi óttast höfrungahlaup vegna nýrra kjarasamninga kennara. Sveitarfélögin verði að ráðast í hagræðingu axli ríkið ekki ábyrgð á sínum þætti.
Rúmur sólarhringur er þar til fyrsti hluti vopnahlés á Gaza rennur sitt skeið. Ísraelar eru sagðir vilja framlengja þann hluta í stað þess að koma á varanlegu vopnahléi.
Austur/vestur-flugbraut Reykjavíkuflugvallar var opnuð á miðnætti í gær fyrir sjúkraflug. Undanþágan er tímabundin og rennur út í byrjun maí.
Fimm ár eru síðan fyrsta covid-smitið greindist hér á landi. Síðan þá hafa tæplega 160 þúsund smit vera staðfest og rúmlega 300 látist af völdum sjúkdómsins.
Fram og Haukar tryggðu sér sæti í bikarúrslitum kvenna í handbolta sem eru á morgun.