Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 5. febrúar 2025

Seðlabankinn lækkaði stýrivexti um hálft prósentustig í morgun. Seðlabankastjóri segir verðbólgan hafi hjaðnað mun hraðar en gert var ráð fyrir.

Ellefu eru látnir og sex eru á spítala eftir skotárás í Örebro í Svíþjóð í gær, tveir eru á gjörgæslu. Lögregla segist enn ekkert vita um mögulegar ástæður árásarmannsins.

Búist er við sunnan stormi og sums staðar ofsaveðri á landinu í dag. Björgunarsveitir eru í viðbragðsstöðu og vegir gætu lokast með stuttum fyrirvara.

Atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun framhaldsskólakennara lýkur í dag. Samninganefndir kennara og ríkisins sitja á fundi.

Íbúar Gaza og stjórnvöld víða um heim hafna alfarið hugmyndum Bandaríkjaforseta sem vill taka yfir landsvæðið og senda íbúa í burt.

Nafnið Kanína hlaut ekki náð fyrir augum mannanafnanefndar. Hún samþykkti Hafgný, Fíónu og Öxi.

Það gæti þurft fresta leikjum kvöldsins í bikarkeppni kvenna í handbolta vegna veðurs.

Frumflutt

5. feb. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,