Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 3. febrúar 2025

Mæðgin hafa verið ákærð fyrir umfangsmikil fjársvik hjá Sjúkratryggingum grunuð um falsa kröfur upp á 156 milljónir á rúmum áratug.

Búist er við vonskuveðri um allt land í dag með vestan -og suðvestan hvassviðri og éljagangi. Óvissustig er vegna ofanflóðahættu á Austfjörðum og búast við aukinni snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum.

Verkfall sem hefur áhrif á fimm þúsund börn hófst í morgun. Formaður Kennarasambandsins segir það verði átak snúa stöðunni við. Deiluaðilar funduðu árangurslaust hjá ríkissáttasemjara alla helgina

Vísitölur á fjármálamörkuðum í Evrópu og Asíu hafa fallið, eftir Bandaríkjastjórn boðaði tollahækkanir á vörur frá Kanada, Mexíkó og Kína. Leiðtogar Evrópusambandsins undirbúa viðbrögð við álíka aðgerðum. Utanríkisráðherra segir dapurlegt tollastríð í uppsiglingu, það bitni á öllum, stórum sem smáum

Tæplega tvö hundruð gestir á tveimur þorrablótum á Suðurlandi veiktust um helgina, sama veisluþjónustan um veitingar á blótunum . Matvælastofnun skoðar málið.

Bráðaaðgerðir í orku- og húsnæðismálum eru á þingmálalista nýrrar ríkisstjórnar sem kynntur verður í dag.

Víkingur Heiðar Ólafsson fékk Grammy-verðlaun í gær í flokki klassískra einleiks-hljóðfæraleikara fyrir flutning á Goldberg-tilbrigðum Jóhanns Sebastians Bachs.

Tindastóll og Stjarnan mættust í toppslag úrvalsdeildar karla í körfubolta í gær. Leikið var fyrir fullu húsi í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ og Tindastóll hafði betur í spennandi leik.

Frumflutt

3. feb. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,