Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 20. nóvember

Seðlabankinn lækkaði stýrivexti um 0,5 prósentur í morgun og standa þeir í 8,5%. Seðlabankastjóri segir full áhrif lækkunarinnar verði ekki komin fram í hagkerfinu fyrr en eftir hálft til eitt ár.

Forseti ASÍ og aðstoðarframkvæmdastjóri SA fagna vaxtalækkun Seðlabankans og telja frekari lækkana vænta. Kjarasamningar eigi sinn hlut í verðbólga og vextir séu á niðurleið.

Rússlandsforseti er tilbúinn ræða vopnahlé í Úkraínu við Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna. Hann er þó ekki tilbúinn til gefa eftir hernumin svæði, líkt og Úkraínumenn hafa sett sem skilyrði.

Heitt vatn fannst á Kjalarnesi og gæti dugað tíu þúsund manna hverfi. Lághitasvæðum sem sjá höfuðborgarsvæðinu fyrir heitu vatni gæti fjölgað úr fjórum í sex.

Alþjóðasamtök gegn jarðsprengjum fordæma harðlega þá ákvörðun Bandaríkjanna senda Úkraínumönnum slík vopn.

Undirbúningur hefst við fern jarðgöng á næsta ári. Framlög til samgöngumála hækka um sautján prósent í nýsamþykktum fjárlögum.

Komi fram nýjar upplýsingar um hvarf Geirfinns Einarssonar verður farið með þær eins og gögn í öðrum sakamálum. Þetta segir saksóknari, enginn gat tekið við gögnum sem höfundar nýrrar bókar um hvarfið vildu koma á framfæri.

Landssamband smábátaeigenda hyggst kæra setningu laga um kvóta á grásleppuveiðar. Sömu vinnubrögð hafi verið viðhöfð þar og við breytingar á búvörulögum sem hafi verið dæmd ógild.

Bóndi segir hvorki eiga reisa mannvirki planta trjám á góðu ræktunarlandi. Það þurfi á því halda í matvælaframleiðslu. Kortleggja á gæði ræktunarlands á Íslandi.

Fari það svo knattspyrnusamband Íslands haldi samstarfi sínu við Åge Hareide áfram þá þurfi forsendur breytast, þetta segir fyrrverandi þjálfari íslenska landsliðsins í fótbolta.

Frumflutt

20. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,