Aðalmeðferð hófst í Reykholtsmálinu í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. Sex eru ákærð meðal annars fyrir líkamsárás og frelsissviptingu í hitteðfyrra.
Sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar í Mið-austurlöndum og tengdasonur Bandaríkjaforseta, er kominn til Ísrael til að funda með forsætisráðherra landsins um friðaráætlun á Gaza og ræddi við leiðtoga Hamas um helgina. Markmið viðræðanna er að Hamas afvopnist og Ísraelar hörfi af palestínsku landsvæði.
Lítilsháttar landsig mælist í Öskju. Landrisi sem hófst 2021 er því lokið. Hættustig vegna eldsumbrota hefur verið lækkað.
Breskir ferðamenn sem grunaðir eru um að hafa skilið fimm ára barn sitt eftir í bíl á meðan þau fóru í gönguferð yfigáfu landið áður en lögregla hafði upp á þeim. Málið er á borði breskra yfirvalda.
Fleiri en einn eru grunaðir um umfangsmikla kannabisræktun í kjallara húss í Króksfjarðarnesi. Einn var handtekinn og úrskurðaður í viku gæsluvarðhald.
Forsætisráðherra Bretlands skiptist á skilaboðum við manneskju sem þóttist vera starfsmannastjóri Hvíta hússins. Ekkert af skilaboðunum hafði mikla þýðingu, að sögn embættismanna og þau voru tilkynnt til viðeigandi yfirvalda þegar upp kom grunur um að þau væru grunsamleg.
Uppbygging stríðsárasafninsins á Reyðarfirði er í fullum gangi eftir mikið foktjón 2022. Stefnt er að opnun nýs safns næsta vor.
Halda þarf vel á spöðunum í íslensku sundi næstu ár, annars verða fáir íslenskir keppendur á Ólympíuleikunum í Los Angeles