Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 5. júlí 2026

Karlmaður á áttræðisaldri lést á tjaldsvæði í Biskupstungum og eiginkona hans er þungt haldin á sjúkrahúsi. Talið er þau hafi orðið fyrir gaseitrun.

Tvö börn fóru á slysadeild eftir hringekja féll á Bryggjuhátíð á Stokkseyri í gær. Eigandi hringekjunnar harmar atvikið.

Formaður VR telur líklegt kjarasamningar bresti í haust. Ólíkt fjármálaráðherra segir hún heimsmarkaðsverð á olíu ekki helstu ógnina við forsendur kjarasamninga.

Forsetar Úkraínu og Rússlands ræddu báðir við Bandaríkjaforseta í síma í gær í tilefni af þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna.

Engin alvarleg mál rötuðu á borð lögreglu vegna Goslokahátíðar í Vestmannaeyjum eða Írskra daga á Akranesi.

Tugþúsundir Albana komu saman til mótmæla í höfuðborginni í gær gegn byggingu ferðamannaparadísar í landinu. Mótmælin hafa staðið í yfir mánuð og voru þau fjölmennustu í gær.

Minjar frá því fyrir landnám finnast enn þá í fornleifauppgreftri við Stöð í Stöðvarfirði. Eftir tólfta sumarið er margt enn ókannað.

Hróarskelduhátíðinni í Danmörku lýkur í dag. Tónleikagestir urðu fyrir sárum vonbrigðum með framkomu poppstjörnunnar Lily Allen.

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta spilar úrslitaleik við Bretland um sæti í næstu umferð undankeppni HM klukkan tvö í dag. Landsliðsmaður segir varnarleikurinn skipti höfuðmáli í leiknum.

Birt

5. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,