Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 16. júní 2026

Fjarskiptastofa telur nokkur þúsund síma nota úrelt kerfi og því óvíst þeir geti náð sambandi við Neyðarlínu.

Forseti Bandaríkjanna segir mikilvægast við samninginn við Írana þeir ráði aldrei yfir kjarnorkuvopnum. Hann leggur til Sýrlendingar sjái um berjast við Hezbollah-samtökin í Líbanon í stað Ísraelsmanna.

Fundað er í kjaradeilu Icelandair og flugmanna hjá ríkissáttasemjara í dag. Lítið þokast í samkomulagsátt.

Niðurskurður til framhaldsskólastigsins næstu fjögur árin nemur nærri átta prósentum, í fjármálaáætlun. Formaður Félags framhaldsskólakennara segir stórsókn sem ríkisstjórnin boðaði í menntamálum vera orðin tóm.

Íslenska ríkið hefur áfrýjað dómi héraðsdóms í plastbarkamálinu. Heilbrigðisráðuneytið telur málið sérstakt og alvarlegt - og nauðsynlegt Landsréttur taki það til meðferðar.

Þrír virkjanakostir voru færðir í nýtingarflokk rammaáætlunar í morgun, þar af tveir á Vestfjörðum.

Fleiri en einn liggja undir grun í tengslum við innbrot í Reykjabúið og svínabú Stjörnugríss, en enginn hefur verið boðaður í skýrslutöku.

Margir leikmenn spila í bleikum takkaskóm á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Skærir litir auka sjálfstraust segja framleiðendur.

Birt

16. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,