Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 25. maí 2026

Dregið hefur úr umsvifum á fasteignamarkaði á undanförnum mánuðum. Lengri tíma tekur selja íbúðir og fleiri eru seldar á undirverði. Sérfræðingur segir hækkandi stýrivexti og takmarkað lánaframboð skýra þessa þróun mestu leyti.

Tvennum sögum fer af því hvort samkomulag í augsýn milli Bandaríkjanna og Írans, þó samið hafi vierð um flest ágreiningsefna.

Prófessor í stjórnmálafræði segir eðlilegt flokkar taki sér tíma við myndun meirihluta eftir kosningar. Engar formlegar viðræður eru hafnar í Reykjavík og oddviti Sjálfstæðismanna er enn meta stöðuna eftir fundi með oddvitum Viðreisnar, Framsóknarflokks og Miðflokks.

Leó fjórtándi páfi baðst í morgun afsökunar á þætti kaþólsku kirkjunnar í þrælahaldi. Þá varaði hann við óheftum áhrifum gervigreindar á þróun heimsmála.

Hægri flokkar báru sigur úr bítum í þingkosningum á Kýpur í gær. Harðlínuflokkur á hægri vængnum jók fylgi sitt töluvert og er þriðji stærsti á þingi.

Jarðskjálfti stærðinni 3,8 varð í Bárðarbungu í nótt. Hátt í þrjátíu eftirskjálftar hafa mælst.

Birt

25. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,