Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 18. maí 2026

Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hittir í dag oddvita þeirra framboða sem fengu kjörna fulltrúa í borgarstjórnarkosningunum. Lítið er látið upp hvernig gengur mynda meirihluta.

Skemmtiferðaskipið Hondius, þar sem hantaveirusmit greindist fyrr í mánuðinum, kom til Rotterdam í morgun. Farþegi greindist með smit um helgina.

Orðalagi spurningar í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður ESB verður breytt. Málið var afgreitt úr utanríkismálanefnd í morgun - . stjórnarandsstaðan segir það ekki hafa verið tímabært.

Loftslagsbreytingar ætti skilgreina sem neyðarástand í lýðheilsu mati Evrópunefndar um loftslag. Formaðurinn, Katrín Jakobsdóttir, segir ógnina ekki hafa farið neitt þó athygli margra beinist annað.

Björgunarskip voru kölluð út vegna fiskibáta í vanda á Breiðafirði í nótt og Húnaflóa snemma í morgun.

Maður var fluttur á sjúkrahús með töluverð brunasár eftir hafa kveikt í sér í morgun. Lögregla hafði reynt yfirbuga hann með rafbyssu.

Blíðskaparveður er víðast hvar í dag og útlit fyrir áframhaldandi hlýindi. Hitinn gæti farið í 18 stig norðanlands um helgina.

Njarðvík er Íslandsmeistari kvenna í körfubolta eftir stórsigur á Haukum í gærkvöld,.

Birt

18. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,