Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 15. maí 2026

Ríflega þrjátíu þúsund hafa kosið utan kjörfundar á landsvísu - nærri fjörutíu prósentum fleiri en fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar 2022.

Viðreisn í Reykjavík á meiri samleið með Samfylkingunni en Sjálfstæðisflokknum, miðað við svör frambjóðenda í kosningaprófi RÚV. Mikill samhljómur er milli Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Flokks fólksins -- en töluvert lengra er milli þeirra og Viðreisnar.

Opinberri heimsókn Bandaríkjaforseta til Kína er lokið, hann segist hafa gert stórkostlega viðskiptasamninga við Kínverja. Yfirlýsingar Kínaforseta eru lágstemmdari.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gagnrýnir markaðssetningu nikótínpúða sem beinist gjarnan ungmennum. Notkunin á Íslandi er einna mest á Norðurlöndunum.

Um 40 prósent barna á höfuðborgarsvæðinu sem þurfa vera í sérskóla komast ekki þrátt fyrir uppfylla skilyrði.

Palestínskir fangar Ísraelshers eru beittir umfangsmiklu og grófu kynferðisofbeldi og pyntingum í haldi Ísraela, samkvæmt umfjöllun New York Times. Ísraelsk stjórnvöld hafna þessu og ætla í mál við fjölmiðilinn.

Formaður Landsbjargar telur betra almannavarnir verði sjálfstæð stofnun en deild hjá embætti ríkislögreglustjóra.

Haukar halda sér á lífi í úrslitaeinvíginu við Njarðvík um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta.

Birt

15. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,