Skortur á áhættumati, skriflegu verklagi og áætlunum er meðal þess sem starfshópur vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga setur út á. Viðbragðsaðilar hafi unnið þrekvirki og þeim að þakka að ekki fór verr.
Heilbrigðisráðherra Bretlands undirbýr afsögn og framboð í leiðtogasæti Verkamannaflokksins.
Fjórir af hverjum tíu foreldrum í aðildarfélögum ASÍ og BSRB eiga erfitt með að ná endum saman. Ný könnun sýnir mikinn mun á stöðu fólks eftir hjúskaparstöðu.
Rannsókn á innbroti í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi, þar sem grísir drápust og dýr særðust, miðar ágætlega. Lögregla telur innbrotið skemmdarverk.
Mette Frederiksson hefur beðist afsökunar á orðum sínum, um að ef hún ætti ung börn vildi hún heldur að þau reyktu en að þau væru ein á samfélagsmiðlum.
Bandaríkjaforseti kemur til Kína í dag og býst við löngum samtölum við kollega sinn um stríðið við Íran.
Valskonur tryggðu sér í gærkvöld fjórða Íslandsmeistaratitilinn í röð í handbolta.