Stór hluti vændismála fellur undir mansal, í því felast grafalvarleg mannréttindabrot og afar aðkallandi er að koma í veg fyrir áframhaldandi eða versnandi þróun, segir dósent við lagadeild HR.
Samfélagsmiðlar og klám móta náin sambönd ungmenna. Fulltrúar unga fólksins á þingi Barnaheilla vilja aukna áherslu á forvarnir.
Meta, fyrirtækið sem á Facebook og Instagram, framfylgir ekki eigin reglum til að hindra aðgang barna, segir Evrópusambandið. Rannsókn á þessu hefur staðið í tvö ár á grundvelli reglugerðar um netfyrirtæki. Mikilvægt er að innleiða hana hér segir atvinnuvegaráðherra.
Ársverðbólga hjaðnaði lítillega í apríl og var 5,2 prósent, í mælingu Hagstofunnar. Verðbólga jókst fram að því frá nóvember.
Formaður Félags fasteignasala segir mikilvægt að lækka álögur á byggingarmarkaði til að tryggja framboð á nýjum íbúðum. Húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar taki ekki á vandanum á fasteignamarkaði.
Ræðu Karls þriðja Bretakonungs á Bandaríkjaþingi í gær var vel tekið. Erlendir miðlar segja konunginn hafa sýnt meistaratakta með áherslu á mikilvægi sambands Bretlands og Bandaríkjanna og hvatt þau til að standa með vestrænum bandamönnum.
Enn er óljóst hvenær framkvæmdum við nýjan kafla á Hringveginum um Hornafjarðarfljót, lýkur. Veður setti strik í reikninginn.
66 ára gamalt markamet var slegið í undanúrslitaleik PSG og Bayern München í Evrópukeppni í fótbolta.