Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 24. apríl 2026

Starfsfólki Matvælastofnunnar hefur verið hrint og það barið við störf. Yfirdýralæknir segir hafa færst í aukana starfsmenn séu áreittir og jafnvel beittir ofbeldi við eftirlitsstörf og fjölskyldum þeirra hótað.

Framleiðsla er hafin nýju í annarri af tveimur kerlínum Norðuráls á Grundartanga. Forstjórinn á von á álverið verði komið í fulla framleiðslu í lok júlí.

Donald Trump er sagður vilja reka Spán úr NATO og hætta viðurkenna Falklandseyjar sem breskt yfirráðasvæði, í refsiskyni fyrir ónægan stuðning við stríðsrekstur Bandaríkjanna í Íran.

Ekkert hefur spurst til Íslendings á sextugsaldri í nær tvær vikur, frá því hann fór af flugvelli í Búdapest í Ungverjalandi.

Þingmaður Hezbollah-hreyfingarinnar segir ekkert vit í framlengja vopnahlé Ísraels og Líbanons. Íranskir og pakistanskir ráðamenn hafa rætt um vopnahlésviðræður við Bandaríkin.

Samherjamálið sýnir fram á spillingu í Namibíu en ekki á Íslandi segir fjármálaráðherra. Listamaðurinn Odee beindi spjótum sínum aftur Samherja í vikunni þrátt fyrir breskan dómsúrskurð.

Fiskeldissjóður hefur úthlutað rúmum hálfum milljarða króna til innviðaframkvæmda í sex sveitarfélögum. Í Farðabyggð verða fjármunir nýttir til virkja sólarorku og kynda fótboltahöll á Reyðarfirði.

Grísk yfirvöld hafa skilgreint fjölda stranda sem viðkvæm svæði og takmarkað aðgang ferðamanna þeim. Bann við sólhlífum og -bekkjum á vernda seli og sjófugla.

Besta deild kvenna í fótbolta hefst í kvöld. Íslandsmeistarar Breiðabliks hefja tímabilið á leik gegn Þrótti.

Birt

24. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,