Ekki er útlit fyrir friðarumleitanir milli Bandaríkjanna og Írans í dag, þótt Bandaríkjaforseti segi samningamenn sína á leiðinni til slíkra viðræðna. Gildandi vopnahlé rennur út á miðvikudag.
Atvinnuvegaráðherra segir fátt nýtt koma fram í umfjöllun Berlingske tidende um íslenskan sjávarútveg. Forstjóri Brims segir blaðagreinina draga upp ranga mynd.
Þúsundir manna deila á spjallþráðum á netinu upptökum af nauðgunum eftir að hafa byrlað mökum sínum ólyfjan. Slík mál koma upp á Íslandi eins og annars staðar, segir teymistýra í Bjarkarhlíð.
Heitavatnslaust er á stóru svæði í Kópavogi, frá Smiðjuvegi að Hamraborg vegna bilunar í brunni. Skrúfað var fyrir stofnæð til að tryggja aðstæður í brunninum og koma viðgerð af stað.
Flóðbylgjur hafa skollið á norðurhluta Japans í morgun eftir jarðskjálfta af stærðinni 7,7 við Kyrrahafsströnd landsins. Engar fregnir hafa borist af tjóni en líkur eru á frekari skjálftum.
Mörg af stærstu málunum sem liggja fyrir þinginu eru skammt á veg komin. Nærri tvö hundruð mál bíða afgreiðslu.
8-liða úrslitum í úrvalsdeilda körfubolta karla lauk í gærkvöld og undanúrslitin hefjast annað kvöld. Undanúrslit kvenna hófust í gærkvöld og halda áfram í kvöld.