Landspítalinn ætlar að fækka starfsfólki sem er í lágu starfshlutfalli til að mæta aðhaldskröfu stjórnvalda. Læknir í hlutastarfi sem var sagt upp í gær segir að sér hafi ekki verið boðið að bæta við sig.
Varautanríkisráðherra Írans segir Hormússund ekki verða opnað fyrr en árásum linni. Hann sakar Bandaríkin og Ísrael um alvarleg brot á vopnahléi með árásum á Líbanon þar sem yfir 200 féllu í gær.
Móðir barns sem á erfitt með að mæta í skólann segir algengt að foreldrar þurfi að vera heima þar sem ekki sé hægt að mæta þörfum barna þeirra í skólanum.
Rússneskir kafbátar voru vikum saman í breskri efnahagslögsögu, að sögn varnarmálaráðherra Bretlands. Hann segir njósnakafbáta hafa verið yfir sæstrengjum og öðrum mikilvægum innviðum en ekki unnið skemmdir á þeim.
Krían er komin til landsins og er óvenju snemma á ferðinni, raunar 11 dögum á undan áætlun.
Einhvers konar veðurviðvörun var í gildi einhvers staðar á landinu flesta daga marsmánaðar, sem var úrkomu- og umhleypingasamur og kaldari um land allt en að jafnaði síðustu tíu ár.
Ný ríkisstjórn í Færeyjum vill aukna sjálfsstjórn, meðal annars sjálfstæða aðild að EFTA og alþjóðlegum samningum, og gera eigin fríverslunarsamninga. Illa gengur að mynda ríkisstjórn í Danmörku.
Íbúðauppbygging á landinu var meiri en þörfin sem varð til vegna mannfjölgunar á síðasta ári.
Fjallabyggð ætlar í viðræður við þyrluskíðafyrirtæki um uppbyggingu á flugvellinum á Siglufirði.