Vonskuveður er á stórum hluta landsins og gul og appelsínugul viðvörun í gildi vegna suðaustan storms og ofankomu. Skólahald er takmarkað og fólk var hvatt til þess að halda sig heima.
Vegir hafa ýmist verið lokaðir eða á óvissustigi og flugi frestað fram yfir hádegi. Fjöldahjálpastöðvar voru opnaðar í Vogum og í Reykjanesbæ.
Nokkur veiðiskip lóna upp í veðrið út af Reykjanesi, hafa tekið upp veiðarfæri og bíða eftir að lægi. Stýrimaðurinn á Guðmundi í Nesi segir að það væri kæruleysi að fara út á dekk
Verðbólga er 5,4 prósent og heldur áfram að aukast milli mánaða. Hagfræðingur Landsbankans telur líklegt að frekari stýrivaxtahækkanir séu fram undan.
Ísraelsmenn segjast hafa vegið æðsta yfirmann íranska sjóhersins. Hann er sagður bera ábyrgð á dreifingu djúpsprengja um Hormússund, sem hefur lokað nánast alveg fyrir skipaumferð. Rússar segja af og frá að þeir útvegi Írönum árásardróna og aðra hernaðaraðstoð.
70 prósent eru sammála því að loftslagsbreytingar séu af mannavöldum í könnun Maskínu fyrir Náttúrverndarsamtök Íslands. Langflestir kjósenda Pírata og Vinstri grænna telja að svo sé en fæstir kjósenda Miðflokksins.